Í Gullhömrum er að finna 2 sali. Á efri hæð í vesturenda er stór salur sem getur tekið allt að 650 gesti í sitjandi borðhaldi með stóru dansgólfi. Öflugt hljóð- og myndkerfi er í salnum. Hluti af honum er upphækkaður og því ættu alli að geta séð á sviðið.
Minni salur Gullhamra tekur 60-120 gesti og hentar því fyrir minni viðburði.
Kappkostað er að veita persónulega þjónustu og vel skipulagða metnaðarfulla veitingamennsku. Matreiðslumenn Gullhamra framreiða veisluföng úr besta fáanlega hráefni í eldhúsi Gullhamra sem er í hæsta gæðaflokki með afkastamiklum tækjum af bestu gerð.
Á matseðlum Gullhamra er að finna úrval girnilegra veislurétta og við fáum reglulega hrós fyrir veitingarnar.
Þar að auki getum við komið með tillögu að drykkjum á undan á meðan og eftir borðhald.
Erum í sambandi við fjölda skemmtikrafta og tónlistarfólk ef þig vantar ráðleggingar á því sviði.
Öflugt hljóðkerfi ásamt búnaði til að halda góða veislu er að finna í báðum sölum ásamt mynd- og ljósabúnaði
Margbreytileg lýsing Gullhamra skapar magnaða stemningu hverju sinni. Við erum fólki innan handar og getum bent á ýmsa valkosti varðandi skreytingar og upplifun í tengslum við viðburði og veislur.
sitjandi Borðhald
sitjandi Borðhald
sitjandi Borðhald
í öllum sölum