Starfsmenn fyrirtækja saman í hátíðarstemmingu í jólahlaðborði Gullhamra. Jólaborð sem svignar undan kræsingum: Forréttir. aðalréttir, kaldir og heitir réttir, eftirréttur.
Húsið opnar 19 og borðhald hefst í kjölfarið.
Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi til 23.30
Jólahlaðborðsdagar 2025
- Miðvikudagur 19. nóvember - uppselt
- Föstudagur 21. nóvember - uppselt
- Laugardagur 22. nóvember - laus sæti
- Föstudagur 28. nóvember - uppselt
- Laugardagur 29. nóvember - laus sæti
- Föstudagur 5. desember
- Laugardagur 6. desember
- Föstudagur 12. desember
- Laugardagur 13. desember
Pantið tímalega í síma 517 9090 eða með tölvupósti gullhamrar@gullhamrar.is og njótið nálægðar jólanna í glæsilegum salarkynnum.
Fjölskylduskemmtun fyrirtækja, Dansað í kringum tréð og jólalögin sungin við frábæran undirleik. Eftir kaffihlé banka skemmtilegir jólasveinar upp á ef krakkarnir kalla nógu hátt á þá. Þeir myndast vel með börnum og eru gjafmyldir á nammipoka.
Á matseðlum Gullhamra er að finna úrval girnilegra veislurétta og við fáum reglulega hrós fyrir veitingarnar.
Þar að auki getum við komið með tillögu að drykkjum á undan á meðan og eftir borðhald.
Erum í sambandi við fjölda skemmtikrafta og tónlistarfólk ef þig vantar ráðleggingar á því sviði.
Öflugt hljóðkerfi ásamt búnaði til að halda góða veislu er að finna í báðum sölum ásamt mynd- og ljósabúnaði
Margbreytileg lýsing Gullhamra skapar magnaða stemningu hverju sinni. Við erum fólki innan handar og getum bent á ýmsa valkosti varðandi skreytingar og upplifun í tengslum við viðburði og veislur.
sitjandi Borðhald
sitjandi Borðhald
sitjandi Borðhald
í öllum sölum